júlí 2013


Magnað hve þetta brauð hefur varðveist vel allan þennan tíma. Geri að vísu ekki ráð fyrir að það sé ætt.Pompeii brauð

Grunar að vísu að ef svona brauð myndi varðveitast þó ekki væri nema brot af þessum tíma nú til dags þá vöknuðu upp spurningar um hvernig E-efni væru eiginlega í blessuðu brauðmetinu.

Preserved loaf of bread discovered at Pompeii.

Nú má sjá sögusýningu í Skálholtsskóla í tilefni af 50 ára afmælis vígslu Skálholtsdómkirkju. Mér hlotnaðist sá heiður að fá að setja upp sýninguna sem opnuð var laugardaginn 20. júlí þegar Skálholtshátíð var sett.

Kristján Valur Ingólfsson hélt stutta ræðu við opnun sýningarinnar.  Í kjölfarið hélt Guðmundur G. Þórarinsson erindi um merka fornmuni, Lewis-taflmennina, sem hann telur hafa verið gerða í Skálholti.

Kristján Valur Ingólfsson hélt stutta ræðu við opnun sýningarinnar.
Í kjölfarið hélt Guðmundur G. Þórarinsson erindi um merka fornmuni, Lewis-taflmennina, sem hann telur hafa verið gerða í Skálholti.

Sýningin inniheldur muni úr gömlu Valgerðarkirkju sem Byggðasafn Árnesinga lánaði á sýninguna. Þá er einnig sýning á gjöfum sem gefnar voru Skálholtskirkju við vígsluna s.s. höklar, biblíur og fleiri gripir. Sýninguna prýða einnig veggspjöld sem fjalla um endurreisn Skálholtsstaðar frá því að Skálholtsfélagið undir stjórn sr. Sigurbjörns Einarssonar hóf baráttu fyrir henni árið 1948, hugmyndum um byggingu bændaskóla í Skálholti, upphafi Skálholtsskóla, frásögnum einstaklinga sem komu að uppbyggingu Skálholtsstaðar ásamt mörgu fleira. Skjöl og gripir sem tengjast uppbyggingu staðarins eru líka á sýningunni auk frumgerðar af Guðbrandsbiblíu. Þá gefst gestum færi á að sjá blaðaumfjöllun um kirkjuvígsluna og hlýða á vígsluna sjálfa, hátíðarmessu og ræður sem þar voru fluttar á borð við þá er Bjarni Benediktsson kirkjumálaráðherra afhenti Þjóðkirkjunni Skálholtsjörð til eignar. Ekki má svo gleyma myndarlegum gjöfum sem Skálholti voru færðar s.s. málverki af Sigurbirni biskupi, hálfrar aldar gömlu líkani af Skálholtsdómkirkju og málverki af fyrstu tillögum að útliti Skálholtsdómkirkju sem gerðu ráð fyrir stakstæðum klukkuturni.

Sýninguna er að finna í fyrirlestrarsal Skálholtsskóla.

Sýninguna er að finna í fyrirlestrarsal Skálholtsskóla.

Að lokum er hér viðtal sem tekið var við mig og birtist í Fréttablaðinu 20. júlí í tilefni af opnun sýningarinnar.

Viðtal130720